sunnudagur, febrúar 08, 2004

Þetta var rosalega gaman, að fara á þorrablót í fyrsta sinn og vera með Lúlla og Gretu og Alex í Hamburg. Við byrjuðum á morgunmat í Höxter og lögðum svo um hálf tíu af stað til Hamborgar. Þegar þangað var komið var byrjað á upphitun uppi á herbergi með einum öllara og svo var haldið til miðbæjar, í grenjandi rigningu, hávaðaroki með regnhlífina uppi við. Eftir strætó, nokkrar lestarferðir og göngu var svo ákveðið að fara á kaffihús því veðrið var að ganga frá okkur. En við náðum að sjá margt fallegt eins og Ráðhúsið, brýr og gamlabæinn með alls kyns tískuvöruverslunum. Þegar við vorums svo aftur kominn á hótelið þá löggðum við okkur. Eftir að hafa lagt okkur þá var skálað í freyðivíni og þá var ekkert því til fyrirstöðu en að leggja í hann. Leigubíllinn var kominn og við fórum á þorrablótið, en af því að það var svaka leikur í Hamborg þá þurftum við að fara upp brekku, 400 metra, já og það í roki og greiðslan fór öll til þið vitið og við vorum orðinn ansi æst þegar við loksins komum að í Das Bauernhaus. Þar hófst gleðin að sjálfsögu með hákarli, ojjj og brennivíni, ojj en náði samt að slurka í mig þremur sjússum,,,, hmmm.

Já þetta var mjög gaman, ég dansaði af mér allt vit, það hefur örugglega verið af því að ég hef fundið á mér að mömmu hafi gengið svona vel. Mamma til hamingju með bikarmeistaratitillinn fyrir 2004, ég missti aldrei trúnna á ykkur. Gg...

En ég verð að viðurkenna að ég var frekar drusluleg þegar ég vaknaði í morgun, alveg bara þið skiljið en er búin að jafna mig á því og komin heim, búin að setja í vél og Alex búinn að pakka fyrir morgundaginn. Já á morgun er aftur vinna og allt það og Nína er að fara í afmæli til vinkonu sinnar, hún skrifaði á kortið sem hún verslaði í Höxter þegar hún var þar í næturleyfi hjá bræðrunum Kidda og Bjarka með Kristínu sem superviser, gekk auðvitað allt flott nema bræðurnir vorum mjög spenntir að fá foreldrana aftur heim, sem Nína var að sjálfsögðu líka. Já svona er þetta allt saman en á morgun þá skrifa ég kannski meira, ég verð að fara í lárétta stöðu núna, þið vitið hvar vegna mikillar þreytu eftir dans, drykkju og brjálað geim.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters