þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Dagur þrjú frá þorrablóti. Ég þarf svo mikið að hugsa um þetta og hvað þetta var gaman. Ég var bara næstum búin að gleyma hvað það er skemmtilegt að skemmta sér með Íslendingum, þeir eru svo hressir og einhvernveginn sleppa alveg fram af sér beltinu, ekki að það hafi verið magadans eða eitthvað þannig bara einhvernveginn svo mikið stuð. ALlir að dansa á fullu, ég og Greta vorum svaka flottar saman í djæfinu, það er því miður ekki hægt að draga alla karla inn í svoleiðis dans en það er kannski þeim meiri ástæða til að fara á dansnámskeið fyrir hjón, svona fyrir næsta þorrablót, Greta og Lúlli við klikkum ekki á þessu, ég er meira segja næstum búin að plata finnsku vinkonu mína og hans þýska mann til að koma með. Henni fannst svo gaman að heyra mig segja frá þessu. Það var samt ekki mikið sungið, ekki að ég hafi reynslu en það var líka bara einu sinni dansað Kónga og það hefði mátt vera oftar. En svei mér þá það var bara svo svo svo gaman, maður á að halda meiri samskiptum við aðra Íslendinga, ég er alveg búin að sjá það, það eru einhvernveginn öðruvísi samskipti, kannski meiri menningarlegur fjársjóður sem maður býr að, sameiginlega. Ég hitti til dæmis Jónas Engilbertsson, ég hafði ekki hugmynd um að hann og kona hans, Lilja sem er úr sveitinni í nágrenni Akranes væru búsett í Hamborg, nú veit ég það. Svo hitti ég Ólaf Mýrdal sem er bróður Gunnars Mýrdals, sem á heima á Akranesi ásamt konu sinni Tótu, ég veit reyndar ekki hver þau eru en á eftir að komast að því, þegar ég sé í símaskránni hvar þau eiga heima. Nú svo var þarna hún Fríða Tómasdóttir og maður hennar Bjarni, hún er barnabarn Fríðu í íþróttahúsinu og svona mætti lengi telja, þetta er auðvitað mjög gaman að spjalla við svona fólk. Fyrir utan hvað það var gaman að sjá Lúlla og Alex dansa eins og stráklinga, öll vorum við svo í svitabaði þegar haldið var heim á leið um hálf fjögur að morgni til. Þeir reyndustu í Þorrablótum í Hamborg sögðu reyndar að þetta væri frekar lélegur árangur, oftast væri dansað til fimm, ég meina það er nú smá munur á hljómsveitum, hvort eins og hjá okkur Bítlavinafél, eða eitthvað álíka er að spila eða STUÐMENN eins og var fyrir þremur árum, þá hefði ég átt að skella mér. En ég er strax farin að hlakka til næsta þorrablóts og ef einhver hefur áhuga þá er hann hjartanlega velkominn líka..... Gréta sér um skráningu.....

Ég læt þetta gott heita í bili, fólk fær bara í augun að lesa of mikið í einu ekki satt....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters