sunnudagur, janúar 28, 2007

En sá viðbjóður

Sem kom fram í Kompás sjáðu kompás hér

Hvað er eiginlega að fólki???

Ég get svarið það!!!!

Maður getur varla látið barnið í nokkurn félagsskap.
Ég get bara hvatt foreldra að láta börnin sín ekki vera ein í tölvunni og að láta börnin ekki vera ein heima!


ykkar Helga

6 Comments:

Blogger Bippi said...

Já, guð minn góður! Ég var nú í hálfgerðu sjokki eftir að hafa horft á þetta þó svo að ég hafi nú alveg vitað að þetta væri til staðar úti um allt.

Ég settist niður með frumburðinum mínum og talaði við hann um þessi mál. Ég er jafnvel að hugsa um að horfa á þetta með honum.

Mér finnst bara ömurlegt að við skulum lifa í svona ljótum heimi að við þurfum að tala við börnin okkar um hluti sem þau eiga ekkert að þurfa að vita neitt um!!!

ÚFF! Ég verð svo reið!

10:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mamma lét mig lesa greinar um misnotkun á börnum þegar ég var 10 ára. Ein þeirra var þýdd og fjallaði um 13 ára stelpu sem hélt hún væri ólétt eftir pabba sinn. Alvöru saga og ég man hana ennþá. Skildi ekki að pabbar gætu gert svona lagað.

Langstærstur hluti af öllum kynferðisafbrotum er framin af fólki (ekki bara köllum) sem fórnarlambið þekkir. En allar ástæður til að tala við börnin um þessa hluti. Og vera tilbúin að hlusta ef þau hafa eitthvað að segja um þessi mál. Hversu óþægilegt sem það kann að vera.

12:02 e.h.  
Blogger Karen said...

Það er óhugnalegt hvað það er til mikið af sjúku fólki.
Svo standa yfirvöld á gati þegar það kemur að því að taka á þessum málum og engin úrræði til boða.
Að dæmdur kynferðisafbrotamaður sem enn er að taka út sína refsingu sé frjáls ferða sinna til að halda áfram uppteknum hætti er til skammar.

12:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ. Var búin að heyra af þessum þætti á umræðunni á barnalandi en var ekki búin að sjá hann, vissi ekki að hægt væri að sjá á netinu.
Þessi barnaníðingur er greinilega enginn hálfviti og veit svo sannarlega hvað hann er að gera en mjög sjúkur.
Þetta net er sko ekki bara til góðs og það bara VERÐUR að fylgjast með því hvað börn/unglingar er að gera á netinu, hvaða síður þau heimsækja osfrv.
Sjáumst á miðvikudag,ræðum betur þá :) Á ég að koma með Brötchen?
IBH

10:29 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Kurbiskern?

2:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þhihihihihihihh

2:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters