laugardagur, janúar 27, 2007

Ísland

Það var skrýtið í morgun að keyra Alex út á lestarstöð þar sem hann fór í lest til Amsterdam til að fljúga til Íslands. Hann verður á Íslandi í viku. Við hin erum heima á meðan. Nínu finnst þetta mjög óréttlátt, hún sagði við mig, en MAMMAAAA af hverju förum við ekki með? Og var eitt spurningarmerki í framan.

Ég er ekki frá því að þetta sé næst mikilvægasta ferð Alex til Íslands í lífi okkar. Mikilvægasta ferðin var fyrir 15 árum þegar hann kom í fjórar vikur til okkar á Reynigrundina aðeins stuttum tíma eftir að ég var komin heim eftir árs dvöl sem skiptinemi í Þýskalandi. Hver veit hvað hefði orðið hefði hann ekki komið? Ég er amk MJÖG fegin að hann skuli hafa komið og vona að þessi ferð hans núna beri álíka mikinn og góðan feng!

En það er nú skemmtilegt að hugsa svona stundum til baka. Hans minning af þessari sögulegu ferð var sú að það var gott veður á hverjum degi? Ætli hann hafi kannski ekki alveg verið á jörðinni??? En hann og Fransiska eyddu þessu líka dýra fríi í m.a. að mála húsið á Reynigrundinni, fara í partý í bústaðinn hans afa og eyða ófáum stundum á langó. En það skemmtilega við þetta er að ég var einmitt að vinna á Höfða í eldhúsinu þá, svona eru örlögin stundum. Skemmtileg tilviljun!

Góða helgi

7 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Eru virkilega liðin 15 ár síðan? Ég man mjög vel eftir þessari heimsókn og ég man sérstaklega eftir basli með stigann þegar við vorum að mála húsið:) Við vorum eins og leirkarlarnir!!

Vonandi gengur vel hjá Alex í þessari ferð, þó svo að hann fái ekki "þann stóra" nema einu sinni. Hann fékk hann jú fyrir 15 árum ;)

Bestu kveðjur héðan úr snjónum og sólinni.

11:03 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Þessir 'leirkallar'?
http://www.youtube.com/results?search_query=pat+a+mat&search=Search

11:17 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Þetta hérna (taka 2)

Ef þetta virkar ekki þá fer maður á www.youtube.com og skrifar í leit "Pat a Mat"...

11:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta er ótrúlegt hvað tíminn líður, já þessir karlar Óli, sérstaklega mamma og Alex, verst að mamma verður ekki með Alex að byggja húsið enda væri nú ekki gott að leirkarlarnir tækju að sér bygginguna :-))))

kv.
Helga

11:52 f.h.  
Blogger Bippi said...

Ég er nú alveg viss um að hann Alex fær aldrei eins góðan feng og þig Helga mín og börnin ykkar! ;o)

3:24 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já Óli það eru einmitt þessir leirkarlar;)

10:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég man líka eftir því þegar Alex kom í heimsókn til Íslands. Við komum þangað í hóp til að kíkja á kauða og ég man líka eftir því að það var alveg sérlega gott veður!

12:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters