kukl og trúin
Náttúrulækningar í Þýskalandi í dag. Við fórum í dag til mjög áhugaverðar konu sem er Heilpraktiker. Ég er líka Heilpraktiker en ekki orðin það mikið menntuð að ég treysti mér að taka fólk og greina það og lækna það á náttúrulegan hátt. Við fórum semsagt með dúlluna okkar hans Balthasar þangað í dag. Hún klippti hár af höfði hans og setti það í tölvugreiningarvél. Út komu svo miklar og merkilegar niðurstöður sem hún notaði til að greina hvaða remedíu passaði best fyrir hann í þessu ástandi sem hann er í. Hann er nú að skána ég tek það nú fúslega fram, á innúðalofti og atroventi, enda væri annað óeðlilegt en að hann væri að skána.
Hann er ekki með kíghósta, ég var nú eiginlega komin á það líka. Reyndar ekki nein próf tekin, bara það sem vélin hennar sagði. En það eru óþarfa veirur og bakteríur að ráfa um í honum sem eiga betur heima annarsstaðar og til að koma aftur á jafnvægi þarf þessi elska að taka inn nokkrar sortir af remedíum (globuli). En rót vandans liggur í þörmum hans. Finnst ykkur þetta ekki spennandi. Ég er alveg ótrúlega glöð yfir því að við höfum farið til hennar og eftir að hafa verið í klukkutíma í viðtali fór sex mánaða sonur minn í ausleitgeraet og það óþarfa- og til vandræða- efni verða pínd úr líkama hans með rafmagnsbylgjum. Hann var í tæpan klukkutíma í vélinni og á að fara fjórum sinnum til viðbótar í vélina, einu sinni í viku. Ég læt ykkur fylgjast með. Mér varð nú svolítið öðruvísi þegar kom að því að greiða fyrir þessa þjónustu en ég læt það liggja milli hluta hvað svona skemmtun kostar. Hver er svosem ekki tilbúin að borga aðeins til að losa barnið sitt við þjáningar og koma etv í veg fyrir ferli sem gæti fylgt honum lengi. Nú hugsa örugglega einhverjir, er Helga alveg að missa sig í þessari vitleysu? En ég skal bara segja ykkur það að þetta er ekki eins vitlaust og það hljómar!
Að öðru, leikurinn á sunnudaginn er hér á næsta leiti við mig, ég hef verið að gæla við þá hugmynd um að skella mér en treysti mér eiginlega ekki ein með börnin mín tvö. Hvernig er það á ekki að skella sér?
Svo vil ég benda á grein sem Óli bróðir sendi í Skessuhornið og hægt er að sjá útdrátt í útgáfunni á netinu. Ég er glöð fyrir hönd okkar í fjölskyldunni að hafa málsvara sem lætur í sér heyra og er ekki að taka því þegjandi og hljóðalaust þegar honum finnst rangt að máli farið. Ég veit að hann er ekki einn um að vera svona og að þeim er alltaf að fjölga í fjölskyldunni sem láta til sín heyra. Held að höfuð fjölskyldunnar í aðra átt sé nú ánægð með þetta!
Jæja elsku krúttin mín, best að leggjast til hvílu, seinustu tvær nætur hafa farið að mestu leiti í að hugga hóstandi barn svo að ekki veitir af því að koma sér vel fyrir nógu snemma! Verðum í bandi, ykkar græðari


11 Comments:
En spennandi og vonandi virkar þetta vel á hann Balthasar!!
Mér finnst að ef náttúrulækningar eru að virka svona vel þá eigi þær að vera inni í heilbrigðiskerfinu og fólk á ekki að þurfa að borga meira fyrir það en almenna læknisþjónustu. Fólk á að hafa val.....
mér finnst þetta ótrúlega spennandi og fylgist spennt með. Ég vísa fólki oft til hómópata og finnst að fólk eigi að geta valið en læknarnir sem ég vinn með eru ekki eins spenntir...
Vona að þetta dugi á litla kútinn,
kv Systa
Vonandi fer kúturinn litli að hressast, agalegt að vera svona lasin. Ég er líka rosa ánægð með Óla, auðvitað á maður ekki að taka því þegjandi þegar svona ósanngirni er í gangi.
Bið að heilsa.
Ég trúi alveg ótrúlega lítið á svona "kukl". Myndi líklega ekki fara í svoleiðs sjálf. En fínt ef það virkar fyrir aðra. Vonandi er Balthasar bara að hressast, hvað svo sem það er sem læknar hann. Mér fannst þetta svoldið RS leg lýsing.
Ég væri alveg ótrúlega til í að fara með þér á leikinn, en aðeins of langt að fara í þetta sinn.
Ég held að þú sért að missa það... Balthasar þegar farinn að jafna sig eftir þessa sýklaárás og þú átt alfarið eftir að þakka þessari óhefðbundnu aðferð fyrir allt saman!
En í sambandi við að láta heyra í sér þá er amma Lilla að springa úr stolti! Vona bara að maður láti nú málstaðinn og málefnanlegar umræður hafa yfirhöndina í stað þess að þurfa að nöldra yfir öllu... en þetta er svona... kannski maður líkist ömmu bara meira og meira eftir því sem líður á :þ
Já það væri nú bara alls ekki skammarlegt. Hún amma getur nú bugað hvern sem er! Hvort sem um ræðir garðálfinn hennar eða forsetann!!
Helga gangi ykkur vel með Balthasar og vonandi að honum fari nú að batna. Ég get vel ímyndað mér að náttúrulækningar nái árangri í einhverjum tilfellum sem sem hin hefðbundna lækning á ekki við.
B.kv. Þóra
Það fyrsta sem maður tekur eftir í allri umræðu um náttúrulækningar, er að sjúklingarnir fá tíma. Hvaða læknir hefði gefið sér tíma til þess að skoða Balthasar í klukkutíma? Gangi ykkur bara rosalega vel:)
P.S. Óli, las umfjöllun um bréfið þitt í Skessuhorni, það á alltaf að láta heyra í sér :)
Það er nú ekkert svo langt síðan að læknastéttin gúdderaði ekki sjúkraþjálfun!!! Núna er nú sjúkraþjálfun nauðsynlegur hluti af bata fólks við hinum ýmsu kvillum....
Ég held bara að við verðum að fara að hugsa alvarlega útí þá miklu notkun á sýklalyfjum sem orðin er. Það þýðir að einhverntíma á annars lítilvæg sýking eftir að verða bannvæn fyrir okkur því bakteríurnar verða ónæmar. Þess vegna á frekar að hvetja líkamann og styrkja hann til að vinna á vandanum sjálfum þó án þess að eiga von á að vandamálið verði krónískt.
Það er nú ekki langt síðan fólk var brennt fyrir að kukla svona!
Kveðja
Helga
Ef mig minnir rétt þá komu sýklalyfin fram um 1850. Það þýðir að við höfum haft c.a. 3-4 kynslóðir til þess að venjast þeim og sýklarnir til þess að þróast. Ég er nokkuð viss um að sýklalyf eigi eftir að þróast eða að öflugri lækning eigi eftir að finnast í þessari baráttu... en 'to each his own'. Mér finnst bara hundleiðinlegt að vera veikur og ennþá leiðinlegra að þurfa að eyða 3 vikum í eitthvað svoleiðis drasl. Kannski að náttúrulækningar séu bara málið fyrir mig?
Hæ Helga. Gott að kallinn er að ná sér. Kannski var það bara slæmt mál hve sjaldan hann kúkaði ;)
Eigum við ekki að skella okkur til DO á sunnudag? Ég ætla að reyna að komast allavega á Public viewing dæmið,keypti m.a.s. risastóran íslenskan fána í Karstadt í morgun.
Bara að mæta nógu snemma,leikurinn byrjar 15:30 og svæðið opnar klukkan 14.
Heyrumst, Inga Björk
Skrifa ummæli
<< Home