Lukkustjarnan
Svífur yfir okkur
ég sendi hana líka til ykkar :-)
Nú er bara allt að smella
Balthasar þurfti að fara á sýklalyf, lækninum leist ekki á framvindu hóstans og við auðvitað gerum allt sem læknirinn segir! Strok var ekki tekið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir mömmunnar, þetta er ekki kíghósti segir læknirinn núna og þvertekur fyrir að taka strok.
kíkið á nýjar myndir á www.familieeck.blogspot.com
knús
Helga


6 Comments:
Til lukku með lukkustjörnuna :)
Æðislega gaman.
Vonandi fer Baltasar að batna af hóstanum. En ég verð að segja að mér finnst nú að læknar eigi að hlusta á mömmur, ekki síst þegar mamma er hjúkrunarfræðingur!!!
Læknarnir hér á Íslandi hlusta allavega stundum á hjúkkumömmur, Siggi fór með Þórnýju til læknis í fyrradag vegna hita og hósta, læknirinn ætlaði að bíða og sjá til en þegar Siggi sagði að mamman væri stressuð hjúkka þá bara beint í röntgen og alles...
Vona að hóstinn fari að minnka hjá Balthasar.
kv Systa
Ég hlakka til að heyra í þér í kvöld til að fá fréttir :)
Búin að tuffa út og suður í dag.
Vonandi virka sýklalyfin vel á Balthasar. Bestu kveðjur
Góðir hlutir henda gott fólk!!
Kreísí læknir, enn ein ástæðan til að koma heim. Hér er oftast hlustað á mömmur, sérstaklega ef þær eru hjúkkur :D
Æðislegt að allt sé að ganga upp hjá ykkur.
Hlakka til að sjá ykkur, fyrr en síðar.
Og mundu að byrja á því að biðja um frí til að komast á hjukkuárshátíðina 5. apríl.
Frábært að allt gengur vel hjá ykkur, hlakka til fá að vita meira.
kveðja
Christel
Skrifa ummæli
<< Home