Bara fínt
Þetta var nú meiri bömmerinn!
Ég átti nú von á góðum gestum um helgina, frá Danmörku. Heiðrún og Kristleifur með börnum ætluðu að koma til okkar og eyða helginni hjá okkur. En það kom ekki til þess því bílaleigubíllinn var of dýr. Ótrúlega leiðinlegt en við því er ekkert að gera. Við fengum nú samt góða heimsókn því hún Anna BJörk kom og eyddi helginni með okkur. Það var mjög gaman og áttum við saman góðar stundir. Takk fyrir Anna! Hún fór með mér á klúbbsfund og hafði mjög gaman af því þetta eru líka skemmtilegar konur sem hittumst í gegn um blaðaauglýsingu.
Nú en á stóru heimili er mikið að gera og það verður gott að fá mömmu og Þórð í heimsókn til að hjálpa mér. Ég stefni á að taka bækur, glös og "óþarfa" og setja það í kassa. Þá er maður amk byrjaður og búinn með slatta. Þau koma á morgun og fara aftur á föstudaginn. Þau fá svo heimsókn frá Óla og Karen um helgina, það á eftir að bráðna kortið!!!!hihihi
Ég flýg svo heim til Íslands með börnin mín þann 29.3. og þangað til er nánast hver einasti dagur skipulagður. Pakka, skemmta sér, versla, hitta fjölskyldu Alex og vini okkar. Nú og svo þarf Alex jú líka að vinna og fara að setja upp sýningarpalla hér og þar þannig að tíminn á aldeilis eftir að fljúga frá okkur.
Mig vantar enn pössun fyrir baby Balthasar tvo daga í viku, stefni á að setja auglýsingu í Póstinn en ef þið þekkið góða manneskju sem væri til í aukapening fyrir að vera með dúlluna tvo daga í viku þá endilega látið mig vita.
Læt þetta updeit nægja í bili kæru vinir og hlakka til að fá ykkur í kaffi í Jörundarholtið til að byrja með.


8 Comments:
Er þetta bara allt að gerast núna??? Ég er greinilega ekki búin að fylgjast alveg nógu vel með! Hvaða vinnu eruð þið búin að fá?
????????
Já, það er allt í einu ótrúlega stutt í þetta hjá ykkur!! Ég hefði helst viljað koma og hjálpa ykkur...er í mjög góðri æfingu sjáðu til!!
Ertu búin að tala við dagmömmurnar? Það er örugglega sniðugt að auglýsa eftir einhverjum tvisvar í viku, ég gæti vel trúað að það kæmi eitthvað út úr því....
Gangi ykkur vel elskurnar!
Það verður örugglega slegist um að passa prinsinn :)
Ég hlakka mikið til að koma í kaffi til ykkar... styttist óðum í það!!
Það er naumast allt á fullu!! Það er alltaf sami krafturinn í þér. Þetta reddast allt Helga mín, njóttu síðustu daganna í Þýskalandi. Mér líst alveg rosalega vel þetta hjá ykkur!
Þakka ykkur fyrir jákvæðar undirtektir elskurnar. Ég fer að vinna á Höfða í 70% vinnu sem er bara algjör ´lúxus og Alex fer að vinna hjá Formaco í Reykjavík alveg frábær vinna.
Ég er spennt hvað kemur út úr þessari auglýsingu, Krissý þú kannski tekur bara prinsinn, hvenær komið þið annars á Skagann?
Já það er alveg merkilegt hvað þetta gekk svo fljótt fyrir sig allt saman... en svona er þetta á Íslandi. yndislegt :-)
kv.Helga
Spennandi tímar framundan hjá ykkur. Við kíkjum kannski bara á ykkur í kaffi um páskana í Jörundarholtinu.
Endilega, ég gæti nú líka skellt í eina köku, það væri frábært ef þið kæmuð Christel :-)
Það væri nú fátt yndislegra en að fá að knúsa prinsinn þinn tvo daga í viku en það verður örugglega meira en nóg að gera hjá mér. Ætla að halda áfram í skólanum í haust þannig að við verðum örugglega komin fyrir þann tíma...ef ekki fyrr, ekkert alveg komið á hreint ennþá. Allavega hlakka ég til að kíkja í kaffi til þín:-)
Skrifa ummæli
<< Home