föstudagur, febrúar 02, 2007

Sumt er svo skrýtið

Ósanngjarnt og óútskýranlegt. Það er kannski ekki gott að segja að örlögin ráði öllu og segja sig sigraðan í einu og öllu. En hvernig öðruvísi fær maður hlutina útskýrða. Sumt á maður ekki að skilja, vera æðrulaus og trúa. Já trúin er mikilvæg og kemur manni langt í lífinu en með henni einni saman er ekki allt útskýrt. Með æðruleysinu ekki heldur, ég trúi ekki á æðruleysið. En þegar á reynir þá er það áberandi hvað fjölskylda manns skiptir mikilu máli. Vinir og fjölskylda það er það sem er hald og traust okkar mannanna, maður á bara að opna leiðina.

Nú er komið að miklum tímamótum hjá okkur. Flutningur er á döfinni og það er ekki langt í hann. Ef einhverjir vilja koma í heimsókn og kannski pakka í einn eða tvo kassa þá endilega að skella sér í verslunarvingjarnlega ferð til Þýskalands. Gestaherbergið er enn laust nokkra daga áður en við flytjum. Ég hef ekki viljað opinbera neitt hér en okkar nánustu vita nú meira. Blessunarlega erum við hjónin komin með vinnu sem við erum rosalega ánægð með. Það eina sem er ekki alveg fastákveðið er pössun Balthasars tvo daga í viku en eins og Atli bróðir sagði þá reddum við þessu. Ég vil helst ekki þurfa að taka heilt pláss hjá dagmömmu því ég ætla að hafa Balthasar hjá mér þegar ég er ekki að vinna. Nú og húsnæði má segja bíður eftir okkur opið á Jörundarholtinu. Það kemur svo bara í ljós hve lengi við ílengjumst þar því við stefnum jú á að byggja á Skógarflötinni. Það er rosalega spennandi verkefni og ég þakka fyrir þá sem styðja okkur með jákvæðum tilsvörum í því. Það er ótrúlegt hvað sumir leyfa sér að gagnrýna mann, eins og maður sé ekki búinn að velta þessum hlutum vel fyrir sér! Nei engin tilfinningaflækja en sumu á fólk bara að halda fyrir sjálft sig. Við erum spennt fyrir þessu verkefni og svo sjáum við hver útkoman verður.

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Mér finnst nú bara alveg frábært það sem þið eruð að fara að gera og eruð ótrúlega heppin að geta gert hlutina einmitt svolítið eftir ykkar höfði.

Þegar að Hekla var hjá dagmömmu var hún bara örfáa tíma á dag. Ég þurfti alls ekki að taka heilt pláss.

Við erum sko meira en lítið til í að hjálpa ykkur í að pakka.... við ættum kannski að smala fleira fólki og rumpa þessu af!!!

Sjáumst fljótlega;o)

8:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það er ótrúlega gaman þegar maður ætlar svo að segja að móta þetta sjálfur. En til hamingju með Heklu dúllu í dag. Vonandi fáum við líka hlutapláss. Já það væri ágætt að byrja amk aðeins að pakka, sjáumst í næstu viku :-)
kv.
Helga

11:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að heyra að þetta er allt komið á gott skrið, við getum ekki beðið eftir að hafa ykkur hér í seilingarfjarlægð hinum megin við Faxaflóann :-)
Kveðja, Anna Sigga og family

12:06 e.h.  
Blogger Silja said...

Iss Helga mín. Fæstir sem að flytja búferlum svona eins og þið eruð að gera hafa hlutina jafn mikið á hreinu og þið. Ef pössun fyrir Balthasar tvo daga í viku er stærsta áhyggjuefnið ykkar þá leyfi ég mér að flissa dáldið... Það var þá áhyggjuefni í þínum heimabæ!
Þetta á allt eftir að ganga snuðrulaust fyrir sig hjá ykkur.

1:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

takk fyrir þetta Silja mín, einmitt það sem ég þurfti :-)

Já Anna Sigga, við verðum duglegar í göngunni og kaffinu ;-)

kveðja magapestskonan

9:55 f.h.  
Blogger Bippi said...

*knús*

12:01 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir mig:) Heimferðin gekk vel og gott að vera komin heim.

6:16 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters