sunnudagur, febrúar 25, 2007

Dugleg....

Helgin búin, já við erum búin að vera rosalega dugleg. Pakka, taka til og henda. Langt komin, bara rosa flottur árangur.

Verst er að litli kútur Balthasar er búinn að vera með um 39 stiga hita síðan á föstudag. Var nú samt hressari í dag. Vona bara að hann nái að hrista þetta af sér, fer kannski með hann á morgun til læknis til að láta hlusta litlu lungun hans, en hef annars góða tilfinningu fyrir því að þetta sé að koma hjá honum. Hann er alltaf jafn duglegur að drekka brjóst, ekkert að vilja sleppa því.

Við fórum svo í svaka kræsingar í dag og hámuðum í okkur góðar veigar. Takk fyrir okkur.

Ekki gekk eins vel og hefði getað með markaðinn, þá bara græða þeir sem minna mega sín, förum með dótið og fötin í rauða krossinn.... GAMAN

jæja best að leggja á, bið að heilsa....

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ á mánudegi. Bara rúmlega mánuður eftir...... hvenær er kveðjupartý?

Litli gaur með hita, æi, vonandi nær hann sér fljótt.

Heyrumst, Inga B.

11:56 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Þið eruð svei mér dugleg, bara langt komin með að pakka :)

Já vonandi hristir Balthasar þetta úr sér fljótlega. Er hann nokkuð kominn með tönn?

Einhver verður fegin að fá fötin frá ykkur :)

Bestu kveðjur héðan.

1:15 e.h.  
Blogger Karen said...

Vá rosalega dugleg :)
En leiðinlegt að lillinn er lasinn!
Vonandi eru þetta bara litlar tennur á leiðinni.

2:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters