Pökkun, tiltekt og matargjafir
Það er nú aldeilis búið að ganga á ýmsu hjá okkur hér á heimilinu. Við fórum til Detmold um helgina og áttum þar ansi góðar stundir í vina og kunningjahópi. Detmold er nú mjög falleg borg og það var ansi skemmtilegt að ganga um götur sem maður var vanur að fara um daglega. Það er nú ekki lítið sem lífið hefur haft upp á að bjóða þegar maður er duglegur að leggja land undir fót. Nína heimsótti vinkonur og hafði bara mjög gaman af því.
Nú á mánudaginn var svo karnival í Þýskalandi, við Nína skruppum í hádegismat til Stadtlohn og kíktum svo með vinum okkar þar á skrúðgönguna með skreytta fólkinu sem var búið að föndra vagna sem dregnir voru af traktórum. Þeir hentu til áhorfenda karamellum, hlaupi og alls kyns góðgæti. Sumir gripu nú meira en aðrir svo ekki sé meira sagt. Það er nú alveg pínlegt hve "gamla" fólkið er æst í að tína upp karamellurnar af götunum, fleygja sér nánast undir vagnana til að ná í sem mest!
Svo er svaka tiltekt í gangi á heimilinu, hvað á að fara í rauðakrossinn, hvað á að setja á markaðinn, hverju á að henda en það kemur stór ruslabíll og sækir drasl frá okkur á mánudaginn og hvað á að fara í kassa. Ef ég væri nú eins dugleg að pakka eins og ég er dugleg að tala um að pakka þá væri ég nú örugglega búinn að þessu!!!
Loksins er hóstinn hans Balthasars að minnka, er samt enn til staðar en sjaldnar og ekki eins mikill. Ég er farin að halda að það sé sveppur í húsinu sem veldur þessu... það kemur í ljós þegar við erum flutt til Íslands.
Auglýsingin í póstinum bar ekki áætlaðan gróða, það voru bara krakkar sem hringdu. Ég er núna búin að hafa samband við atvinnuleysisskrifstofuna á Akranesi, kannski það sé einhver mamma eða amma sem vilji fá smá aukapening og í leiðinni leika við Balthasar!!!
Ég er alltaf á leiðinni að minka aðeins brjóstagjöfina en það gengur eitthvað brösuglega hjá mér. Hann er nú ekki mikill matarmaður drengurinn, fær mjólkurgraut á kvöldin og svo er ég að berjast við að gefa honum grænmeti eða eitthvað í hádeginu, það kemur oft allt í einni bunu upp úr honum. Brauð og banana þýðir ekki að bjóða honum, bara kúgast og ælir því.... veit einhver ráð?
setti nokkrar myndir inn á familieeck.blogspot.com er búin að vera léleg í að setja myndir á barnaland, það er alltaf svo lengi að hlaðast inn þar, mikil traffík... læt þetta duga í bili, knússsss


5 Comments:
Úff mér finnst svo leiðinlegt að pakka niður...mikið skemmtilegra að taka uppúr kössum!
Gott að Baltasar er betri af hóstanum, viss um að það verður allra meina bót að koma til Íslands :)
Gangi ykkur vel í öllu flutningsstússinu.
Og frábærar myndir á fjölskyldusíðunni!!
Gott að hóstinn hans Balthasars sé að minnka. Greyið litla skinnið.
Nei því miður kann ég ekki neitt ráð.
Bestu kveðjur, Þóra
Fínar myndir Helga, væri ekki sniðugt að pakka í eins og 2 kassa á dag? Þá minnkar þetta smá saman :)
Ég ætlaði aldrei að geta komist á Blogger til að blogga áðan, þurfti að breyta og tómt vesen, en gekk fyrir rest.
Ég stefni á að setja inn myndir á morgun, nenni ekki meiru í dag ;)
Æðislegar myndirnar ykkar!!
Sammála Siggu, um að gera að taka bara lítið fyrir í einu og þá frekar að gera það oftar.
Þetta virðist kannski vera óyfirstíganlegt núna en vittu til þetta verður sko fljótt að koma;)
Gangi þér vel skvísa;o)
Balthasar er augljóslega bara að njóta þess að vera með mömmu sinni. Mér fannst best að kynna matinn þegar tennurnar koma, það er svo gott að japla á kaldri vatnsmelónu eða mandarínu þegar klægjar í gómana! Njóttu þess bara að hafa hann á brjósti á meðan hann endist!
Skrifa ummæli
<< Home