föstudagur, febrúar 16, 2007

Heimsókn og Karnival

Jæja það er aldeilis búið að vera ljúft líf núna seinustu daga. Við fengum góða gesti frá Danmörku, mamma og Þórður kíktu í nokkra daga. Þau komu með lest og fengu lestarmiðana á spottprís og voru bara alveg geysilega ánægð með þetta allt saman. Enda óvenju jákvæðar manneskjur á ferð. Það var aldeilis tekið á honum stóra sínum. Fyrstu kassarnir eru fínt uppraðaðir inni í HWR, eða vinnuherbergi húsmóðurinnar! Búið að losa borðplötuna sem þar var föst á vegg og búa til pláss fyrir næsta tuginn af kössum. Það er amk byrjað að pakka og undirbúa. Ekki nema restin eftir :-)

Við fórum í nokkur skipti niður í bæ og blotnuðum mismikið en í dag var alveg gjörsamlega frábært veður og í gær var það svosem líka allt í lagi. Það var bara mjög leiðinlegt þegar við Nína og Balthasar sóttum þau á lestarstöðina, í þessari líka grenjandi rigningu. Enda strunsuðum við bara beina leið á kaffihús og þaðan á krá, með Balthasar með í för :-) Bara best að venja barnið við sem fyrst, hehe....

Þetta var bara alveg æði og ég þakka bara kærlega fyrir komuna.

Í gær fékk ég svo mæðrarorlof, ég fór á karnivalshátíð með sex klúbbsvinkonum mínum og við fórum hér í nágrannabæ og ég segi bara VVVáááááááááá..... við hittumst kl.14 og þá var byrjað að skralla. Kl.16 fórum við svo í átt að bænum, fengum systur einnar til að keyra okkur og ein okkar, fyrir utan mig, var edrú og á bíl. Þar var svo farið í miðbæinn og pöbbarölt var áætlunin. En bærinn var bara troðinn af alls kyns klæddu fólki, línu langsokkar, karlar í skærappelsínugulum jakkafötum, endur, mörgæsir, Heiða litla... í fleirtölu, alls kyns búningar og andlitsmálningar, alveg rosalega flott hjá mörgum hverjum. Þangað voru semsé mættir hópar af fólki, hvort sem voru vinkonur eða klúbbar eða bara fjölskyldur. Allir með það fyrir augum að skemmta sér og öðrum. Stemmingin var frábær og bærinn troðinn. Gleðin endaði um hálf sjö þegar fimm úr hópnum fóru á stóran dansstað hér í nágrenninu til að gera þetta nú almennilega. Við hinar tvær sem vorum eitthvað rólegri fórum þá á kaffihús og fengum okkur æðislegt kaffi. Ég var nú ekki alveg á heimleið fyrir sjö þegar ég var með svona frábærar barnapíur, mamma og Þórður og vissi að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af neinu. Það er nú alveg ómetanlegt að hafa fjölskylduna nálægt sér upp á þetta að gera. Svo þegar ég kom heim þá hafði varla neinn tekið eftir því að ég væri ekki heima!!!!!

Gleði gleði gleði.....

En við erum að fara til Detmold á morgun, ég óska bara fjölskyldu minni góðrar skemmtunar í Köben, þeim sem þar eru og hinum öllum sem lesa bara yndislegrar helgar

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Helga. Ég er sammála Gunnu að það er lengi verið að pakka en maður er enn lengur að taka upp. En það er skemmtilegt, það eru svo margar góðar minningar sem rifjast upp sem tengjast hverjum hlut. Ég er búin að vera taka upp núna í rúmann mánuð og er rúmlega hálfnuð. Mundu bara að merkja kassanna vel, sérstaklega þetta nauðsynlega sem maður notar daglega. Kv. Bjarnhildur

12:26 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Við Þórður þökkum kærlega fyrir okkur, þetta var dásamlegur tími sem við áttum saman hjá ykkur :)

Við náðum lestinni frá Hamborg, vegna þess að við létum lestarstarfsmann vita um ferðaáætlun okkar eftir stoppið í Bremen þegar við sáum að þeir unnu ekki upp seinkunina. Við áttum að hafa 13 mín í Hamborg en komum þangað 5 mín eftir að lestin okkar átti fara til Kaupmannahafnar, en þeir biðu eftir okkur. Það kom skemmtilega á óvart!

6:51 e.h.  
Blogger Karen said...

Þetta var sko yndisleg helgi í Köben :)

12:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Helga mín
Þú fílar s.s. Karneval :) Hvar voruð þið? Ég er ekki alveg að fíla þetta törö törö, haugfullir unglingar og karlmenn í trúðabúningum, hahaha. Fór samt niður í bæ og Julian nældi í nokkra mola frá þessum annars nísku "Jecken". Bakaði svo bollur og fagnaði bolludegi :)

Verst að fá ekki saltkjöt fyrir morgundaginn :(

Góða skemmtun í Detmold og við sjáumst.

Inga Björk

7:15 e.h.  
Blogger Silja said...

Gott að þú skemmtir þér vinkona. Þú færð ábyggilega að venjast því að vera ekki algerlega ómissandi þegar þú flytur aftur á Klakann. Gangi þér vel að pakka.

12:08 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters