miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Skrið, næturbrölt og kveðjupartý

Nína er búin að ákveða kveðjupartý fyrir bestu vini sína. Það verða tíu sem mæta og það á að fara í keilu eftir kaffi og koma svo í pizzu eftir keiluna. Þetta er um þarnæstu helgi á sunnudegi, ekkert annað var laust í keilu hér ská á móti. Það er fínt. Nína er ótrúlega jákvæð og glöð með flutningana. Þrátt fyrir að það sé sárt að sjá á eftir vinum sínum. En kannski koma amk Móna og Lisa einhverntíma í heimsókn. Móna er strax byrjuð að reyna að fá mömmu sína til þess að leyfa sér að koma, það er nú ekkert svo dýrt að fljúga, kostar jafn mikið og vika á reiðnámskeiði og Móna mundi alveg sleppa því til að geta komið. Við sátum í kaffinu í gær og vorum að spjalla, kíktum á landakortið og Akranes bækling, allt voða áhugavert. Nema mamma Mónu heldur að það sé ómögulegt að senda barnið í viku tíu daga með flugi á fjarlægar slóðir. Lisa og mamma hennar hins vegar tóku strax vel í þetta og mamma hennar sagði, þá þurfum við ekki að velta því lengi fyrir okkur hvert við förum í fríinu. Það verður spennandi að sjá svo hverjir koma....

Á mánudaginn var kveðjustund á Reiðbýlinu þar sem Nína hefur nú verið í tvö ár í reiðtímum á Íslenskum hestum. Hún er mjög spennt fyrir því að halda áfram í Reiðsportinu, maður verður að athuga hvernig það er, hvort það sé ekki hægt að fá að fara með einhverjum og vera smá þarna uppi í hesthúsum til að byrja með. Svo ætlar hún að kaupa sér hest, hún er löngu byrjuð að safna.

Balthasar er eitthvað ósáttur þessa dagana, hitinn er farinn og allt í lagi með það en nú er næturbrölt og pirringur í honum, búið að vera í tvo daga. Ég sé alveg glansa í tennurnar í gegnum slímhúðina í munninum en þær eru eitthvað feimnar þessar druslur. Þannig að við erum bara á chillinu á nóttunni, frekar óþolandi en það hlýtur að koma hjá okkur. Hann er farinn á fulla ferð drengurinn, eins gott að passa sig á honum. Alltaf svangur þessi elska, fékk Weetabix í morgunmat, hæstánægður með það, borðaði hálfan skammt á við Nínu! Nú fer þetta vonandi að koma með þetta matarstúss hjá honum.

Ég er bara svei mér þá ótrúlega dugleg að pakka, kemst varla í sturtu, hvað þá út að ganga fyrir stressi.... Í gær komu ruslakarlarnir að sækja skápana og hillur og eitthvað sem við vorum að sortera til þess að henda. Ég er svo hrædd um að gámurinn sé ekki nógu stór fyrir okkur!!!

Balthasar er byrjaður í aðlögun, hann fór í pössun í gær frá hálf tíu til eitt, gekk bara vel, hann verður vonandi áfram svona góður hjá öðrum. Ég hlakka til að koma til Íslands með krakkana mína og geta verið meira með fjölskyldu og vinum.

Hlynur frændi minn verður átta ára á morgun, ótrúlega er hann orðinn stór strákur....
Til lukku með soninn Óli minn.....á morgun vissulega! Það lítur allt út fyrir svaka veislu um helgina, góða skemmtun!

Við erum að fara til tengdaforeldranna á morgun að "kveðja" þannig að maður verður aftur á flakki þessa helgi, það er bara gaman. Nína fer líklegast ekki með, besta vinkonan hún Lisa heldur upp á afmæli sitt og Nína vill helst ekki missa af því, hún eigi örugglega ekki eftir að komast aftur í afmæli en eigi eftir að sjá ættingja sína oftar, kannski eitthvað til í þessu hjá henni en samt leiðinlegt að koma ekki með.....

Lifið heil

7 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Gangi þér vel með pökkunarpúlið :)

Þú mátt til með að gefa þér tíma til fara í hressandi afstressandi göngutúr og fara svo í 2ja - 3ja kettlinga-sturtu á eftir (flokkunarkerfi Óla bróður þíns)

Góða skemmtun hjá tengdaforeldrunum um helgina, við biðjum kærlega að heilsa þeim. Þú reynir bara að slappa af hjá þeim og safna kröftum fyrir "framhjáhaldið" við pökkunina, ekki satt Alex?

Bestu kveðjur

2:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég viðurkenni að ég fór nú í hressandi góða sturtu í morgun, varð bara aðeins að ýkja þetta hjá mér, ég er nú ekkert sérlega mikið að pakka, hef engar áhyggjur af þessu, enda gert þetta all nokkrum sinnum!!!

En bara svo að það sé á hreinu þá sér Alex alveg um "framhjáhaldið" þannig að ég þarf engar áhyggjur að hafa, hihi....

fyrir þá sem ekki vita er þetta framhjáhald algjörlega meinsaklaust, hhmmmmm

kveðja Helga

3:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

He he he.. framhjáhaldið. Þetta er alveg frábært! Gangi ykkur vel og góða skemmtun í heimsóknum um helgina :)

Kv. Þóra

3:50 e.h.  
Blogger Bippi said...

Vá, það er bara allt að gerast hjá ykkur! Spennandi!

Ég skil það nú vel að hún Nína vilji fara í afmælið um helgina.

Kannski hittið þið Snorra á Íslandi um Páskana. Það er búið að panta flug fyrir drenginn;o)

8:48 e.h.  
Blogger Karen said...

Frábært að pökkunin gengur svona vel.
Mér finnst mjög krúttlegt að Nína eigi vinkonur sem heita Mona og Lisa, bara sætt!
Týpískt eitthvað svona sem mér finnst skemmtilegt.
Góða skemmtun um helgina :)

11:35 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Gangi ykkur vel í kassastússi og góða ferðahelgi :-)

10:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, litlum strákum finnst gott Weetabixið! Með smá banana kannski..
Sendi ykkur baráttukveðjur í pakkelsið og flutningana, veit að þú ferð létt með þetta Helga mín. Það er rosa fínt að alast upp á Skaganum og ég svona hálf öfunda þig að láta verða að þessu, ekki segja mömmu samt!!

Kossar frá okkur í Lundúnaborg x

9:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters