miðvikudagur, mars 14, 2007

Tvær tennur

Það er aldeilis nóg að gera hjá sumum sem urðu 8 mánaða í gær. Nú er bara algjörlega allt í hættu á heimilinu, hann skríður um eins og í kappi við tímann þessi elska. Skilur svo ekkert í því að maður segi nei, finnst bara gaman að það sé verið að tala við sig og brosir allann hringinn. Toga í snúrur, koma við strengina í gítarnum, velja sér geisladisk (til að hlusta á væntanlega?), tína upp kusk já og það nýjasta er að reisa sig upp við uppþvottavélina og draga út neðri hilluna, detta á bakið/ höfuðið og fá körfuna yfir sig...., standa upp við stigann, já og bara......

Svo eru tvær tennur komnar í gegn, það var skálað fyrir því á heimilinu, líka fyrir því að næturnar verði þá rólegri.....

Í dag á Kristleifur Brandsson afmæli, til hamingju með það vinur, við óskum þér ánægjulegan dag í faðmi fjölskyldu og vina, kannski köku og kaffi???

Svo er bara sól í hjarta, sól í sinni....

8 Comments:

Blogger Gunnur said...

Já Helga mín, það er endalaust stuð á svona strákagaurum :-) Ég þarf alltaf að athuga þvottavélina vel áður en ég sett þvottinn í hana, símar, kubbar, bílar og ýmislegt annað skemmtilegt er oft að finna þar hehehe

11:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með tönnslurnar :) Það hlaut að vera.
Hlakka til að sjá myndir af þeim.
Sólakveðja
Inga Björk

11:09 f.h.  
Blogger Bippi said...

He, he, flottir gaurar;o)

Bíddu bara tangad til ad tú ferd ad hlaupa á eftir honum;o)

Vid ætlum ad fara út ad borda í kvöld, en tad verdur sameiginlegt afmæliskaffi fyrir Bippa og Snorra um helgina! Ætlardu ad mæta?? ;o)

11:09 f.h.  
Blogger Helga said...

Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

11:30 f.h.  
Blogger Helga said...

Hehe Gunnur, það þarf nú að þvo dótið stundum, kannski samt óþarfi í þvottavélinn...

Já Inga þú segir satt, það er ekki auðvelt að fá að taka myndir af tönnslunnum, ég sé hvað ég get gert...

Heiðrún, góð hugmynd, hmmmm

11:30 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Til hamingju með tennurnar!!! Komu þær kanski í gær, daginn sem hann var 8 mánaða?
Vonandi verður pilturinn rólegri á næturna eftir tanntökuna, en þetta er svo sem bara byrjunin þær eiga eftir að koma fleiri :)

Já það er eins gott að fylgjast með þeim stutta. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af stigum eða tröppum í Jörundarholtinu.

1:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hann verdur þó ekki eins og frænka sín sem var ekki vinsælust hjá dagmömmunni, opnandi allar hurðir og gangandi um allt, allt of snemma.....

KV. Helga

1:40 e.h.  
Blogger Karen said...

Jáhá það er aldeilis að hann er flottur á því :)
Til lukku með tönnslurnar!

1:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters