Happy days
Maður er á einhverju svifflugi hérna. Alveg bara merkilegt hve gaman það er að lifa. Allir vilja hitta mann, maður hefur varla nokkurn tíma til að vera sorgmæddur yfir því að kveðja alla, svo mikið er stuðið á manni.... Kannski það sé eitthvað í þessum nýja kaffipoka sem ég keypti, nei bara smá grín.....
Ég setti aftur auglýsingu í póstinn, seinasta auglýsing bar engan árangur en núna rauðglóir síminn hjá Þóru sem situr sveitt við vinnu sína..... Hver hefði átt von á þessu en það sýnir sig að textinn skiptir öllu máli.
Takk fyrir kveðjurnar og stuðninginn í sambandi við allt þetta krims krams hjá okkur, þetta er allt á svífandi sveiflu hjá okkur og ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu, Alex hefur þá amk eitthvað fram í apríl í að pakka og taka til restina.
Við fáum aldeilis góða heimsókn síðustu helgina okkar, Þóra ætlar að koma, hún lendir í Amsterdam 22. og fer aftur heim á sunnudeginum, Mamma var að segja að þau Þórður ætla að kíkja líka frá Köben þessa helgi, æðislega gaman að fá svona góða gesti seinustu dagana sína hér úti, þá er nú ekki spurning um að fara til Munster í smá verslunarleiðangur! Næstu helgi koma Eveline og Jan í stutta helgarheimsókn og svo fer Alex núna á laugard. til Amsterdam að setja upp sýningu.... Gaman, gaman....
Haldiði að drengurinn okkar hafi ekki rifið sig upp af gólfinu og staðið upp við stofuborð á miðvikudaginn, þetta litla kríli, skil ekki hvað hann er að drífa sig, sjö og hálfs mánaða!!!! nei næstum átta.... gaman að þessu.
jæja best að skella sér í nokkrar mínútur á sófann áður en prinsinn vaknar, prinsessan er úti að safna pening fyrir fátæk börn í Afríku, alltaf jafn dugleg þessi börn manns...


4 Comments:
Mikið líst mér vel á hana Nínu að vera að safna fyrir börnin í Afríku, ekki veitir af. En það er nú aldeilis að prinsinn á heimilinu er að flýta sér!!!
Má hann ekkert vera að því að vera lillababy??
Gaman að heyra um heimsóknirnar, það verður aldeilis gaman hjá ykkur :)
Já það er sko stórhugur í þessum krökkum þegar þau eru að safna, svo á að fara í tíu km göngu í staðinn, þannig að söfnunin er fyrir börnin í Afríku en til þess fara krakkarnir í bekknum í þessa göngu og það er nú ekki mikil ánægja með það....
Nei hann má ekkert vera að þessu lillababy dæmi hann Balthasar, bara fer framúr sjálfum sér þessi elska, eins og það er ljúft þegar þau bara liggja þar sem maður setur þau á gólfið, nú skilur hann ekkert í því að hann meiðir sig þegar hann rekst með höfuðið alls staðar í og tröppur, vá hvað þær eru spennandi.....
Já það verður sko verslað ef ég þekki mitt fólk rétt, Þýskaland er náttúrulega bara frábært til að versla, allt svoooo ódýrt!!!
kv.Helga
Já þetta er ansi sorglegt.. Að yfirgefa Þýskaland og fjölskylduna þar. Það er nú samt alltaf ekki svo langt að fara fyrir ykkur í heimsókn og fyrir þau að koma til ykkar. Og alltaf virðist verðið lækka þannig að það er allt saman gott og blessað þó ég trúi því að þessu skrefi fylgi ákveðin sorg.
En yfir að öðru.. jiminn hvað ég hlakka mikið til að koma til ykkar. Svakalega verður gaman að sjá Balthasar beibí aftur... ég hef náttúrulega ekki séð hann síðan hann var lillababy :)
Þau fullorðnast svo fljótt.. og já það er sko satt þetta er allt of fljótt að líða!!!
En það er satt, það er svo svakalega ódýrt að versla í Þýskalandi að það mætti halda að maður hreinlega græði á tá og fingri við það að versla þar :)
Gaman að þessu
B.kv. Þóra
Ætli flugið borgi sig ekki bara ef maður þarf að klæða heila fjölskyldu!!! ;o)
En njóttu síðustu daganna alveg í botn Helga mín.
Það er nú samt gott að hún Nína er niðri á jörðinni í öllum hamaganginum og safnar fyrir fólkið í Afríku!!! ;o)
*Knús á allt liðið*
Skrifa ummæli
<< Home