þriðjudagur, mars 06, 2007

Kveðjuhittingur og kveðjupartý

Það gengur á ýmsu á heimilinu. Allir eru svona á síðasta snúningi að bjóða manni hingað og þangað í hin ýmsu boð. Við fórum um helgina að hitta tengdafjölskylduna og eru allir voða spenntir fyrir því að koma aftur til Íslands. Það verður gaman að geta tekið á móti fólki í nýja húsið vonandi strax í lok þessa árs.

Nína er mjög jákvæð og hress þessa dagana. Hún fór í afmæli um helgina til bestu vinkonu sinnar og var það þrusu stuð. Hún gisti eina nótt hjá vinkonu sinni hér í götunni og hina nóttina hjá afmælisvinkonunni. Bara alveg laus við foreldra sína, það gerist nú ekki oft hjá henni. Enda er ég mjög spennt fyrir því að hún fái að vera eina og eina helgi hjá frændfólki sínu í Reykjavík þegar við flytjum. Gaman að sjá hvernig það kemur út. Hún var alveg dauðþreytt þegar haldið var til rekkju á sunnudag og gengur ansi erfiðlega að komast fram úr bólinu á morgnana. En sem betur fer er nú mjög bjart úti þegar við vöknum og það hjálpar óneitanlega til, nema maður sé með rolladen það þétt lokaðan að það sé almyrkvi inni í svefnherbergi.

Ungi maðurinn á heimilinu er óstöðvandi þessa dagana og eru tröppur stórhættulegar.... Það má ekki líta af honum í mínútu, þá er hann horfin og heyrast einhver furðuleg hljóð. Maður er alltaf á spretti.... gaman að þessu. Bara vona að hann gefi sér tíma áður en hann fer að standa upp og hlaupa um hér. Skil ekki þennan asa í barninu, eins og hann sé að missa af einhverju?

Í dag er kaffi hjá vinkonum úr óléttuhópnum, á morgun morgunverður með fyrrverandi samstarfskonum, á föstud. kemur Inga Bj. og um helgina er svo brjálað prógramm. Hálfmaraþon hjá sumum, Matthias mágur og fjölsk. í heimsókn og kveðjupartý hjá Nínu, okkur ætti ekki að leiðast.....

6 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Já það er aldeilis nóg að gera hjá ykkur. Það er eins gott að líta ekki af Balthasar, í það minnsta þegar þið eruð uppi. Stiginn er svo ferlega brattur og hættulegur.

Gangi ykkur vel á lokasprettinum :)

11:02 f.h.  
Blogger Christel said...

Gangi ykkur rosa vel í flutningunum.
Það er eins gott að passa litla krílið,það er ótrúlegt eins og þú segir hvað þau eru alltaf að drífa sig.
Margrét Saga biður að heilsa Nínu.

11:50 f.h.  
Blogger Karen said...

Brjálað að gera semsagt!!
Nína er velkomin í gistingu hvenær sem er á Eggertsgötunni, ekki spurning.

2:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Helga,
barnarúmið er hér heima og þið getið fengið það ef þið viljið.
Kveðja Valli

6:06 e.h.  
Blogger Silja said...

Brjálað að gera hjá þér þessa dagana. Njóttu vel!

2:13 e.h.  
Blogger Bippi said...

Þú verður komin til Íslands áður en þú veist af. Það er svo mikið að gera hjá þér að tíminn hlýtur að fljúga áfram!!!

Góða skemmtun í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og gangi þér vel elsku Helga mín.

*knús*

8:20 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters