sunnudagur, mars 11, 2007

Kveðju-afmælishátíð og heimsókn og hálfmaraþon

Það er nú alveg yndislegt hvað hann Alex elsku dúllan mín er duglegur, hann fór hálfmaraþon í gær eftir að hafa verið að stússast hér í húsinu um morguninn á meðan ég og Nína bökuðum tvær ofnskúffukökur og tvöfalda muffinsuppskrift... Við Balthasar fórum með Alex til munster þar sem hann fór á 1:45 þetta afrek og bara sáttur við þann tíma. Veðrið lék við okkur og varð úr þessi góði útiverudagur.

Í dag komu svo Eckararnir frá Hannover til okkar í Brunch og afmælisveislu, Fóru ekki heim fyrr en langt að ganga átta því það var svoooo gaman. Sumir hefðu nú ekki haft neitt á móti því að taka eins og einn lítinn frænda með sér heim! Svo kom stúlknaskarinn kl.15 og komu margar vinkvenna Nínu með yndislegar gjafir sem eiga eflaust eftir að verða geymdar vel í framtíðinni.
Semsagt mjög vel heppnuð helgi og gaman hjá okkur. Vikan á eftir að verða fljót að líða, Alex fer á laugard. til Amsterdam að setja upp og svo fer nú heldur betur að styttast í okkur. ég veit ég er alltaf að segja þetta ;-)

9 Comments:

Blogger Christel said...

Það er allt í lagi þó þú sért alltaf að segja að þú sért á leiðinni til Íslands þetta er líka svo spennandi. Ég veit ég verð líka svona spennt þegar kemur að því að flytja heim aftur.

Það er gaman að því að Nína fær svona góðar kveðjur og gjafir frá vinum, það er ómetanlegt. Þegar við fluttum frá Íslandi héldum við svona kveðjupartý fyrir Margréti og vinkonur hennar og hún talar oft um hvað þetta var yndisleg stund og gjafirnar frá vinkonunum geymir hún eins og gull.

Gangi ykkur rosa vel í flutningunum.

10:47 f.h.  
Blogger Karen said...

Ohhh það styttist verulega í þetta, vorum einmitt að segja við Hlyn í gær að þarnæst þegar hann kemur til okkar þá verðið þið komin!!
Æsispennandi :)

11:15 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Já hann er svei mér duglegur hann Alex, hálfmaraþon ekkert smá :)
Veðrið er aldeilis gott, hér fór hitinn í 15 stig í gær og núna er 17 stiga hiti og sól.

Ég reyndi að skrifa comment hér í morgun klukkan 7 þá var hitinn bara
5°, en það gekk ekki hjá mér að publisha commentið. Það var eins ég væri ekki með rétta aðgangsorð eða eitthvað.

Bestu kveðjur, hlökkum til að hitta ykkur. Kanski skrópa ég í skólanum á föstudeginum og við komum seint á fimmtudeginum, ok?

1:24 e.h.  
Blogger Bippi said...

Frábært hjá Alex hálfmaraþonið!!

Mér finnst allt í lagi þó svo að þú skrifir í hverja einustu færslu að nú fari nú að styttast í ykkur;o) Maður verður bara spenntur með ykkur!!!

4:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú ekkert að því að spenningurinn magnast! Hugsa til þín Helga mín, vona að allt gangi sem í sögu! Við komum til landsins um miðjan Júní, erum við boðin í kaffi? Ef þig vantar eitthvað frá London þá láttu vita, hlakka til að Ótis og balthasar hittist loks x x x

12:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var svo yndislegt fyrir Nínu með kveðjuhófið, hún á eftir að lifa lengi á þessu.

Karen það verður gaman að hitta ykkur eftir nokkra daga :-)

Mamma ég hlakka til að fá ykkur, þvi lengur, því betra!


SVana ég bíð í kaffi þú hefur samband, það verður gaman fyrir þá að hittast...

kv.Helga

8:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er svooo gaman hvað er farið að styttast mikið í ykkur - aldrei er góð vísa of oft kveðin:)

5:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ og takk fyrir morgunmatinn á fös.
Allir hlakka til að fá þig en ég mun sakna þín :( Er samt rosa ánægð fyrir ykkar hönd.
Seydi spurði mig hvort þú værir búinn að redda íbúð handa okkur þegar við komum í heimsókn :) Ég sagði honum auðvitað frá húsinu ykkar með "Ferienwohnung" ;)
Sjáumst á sunnudag
Kveðja Inga Björk

6:55 e.h.  
Blogger Helga said...

Anna við verðum sko duglegar að hittast, ég verð alltaf í skrepp heimsóknum út um allar tryssur.... (vantar þig ekki þýskumælandi 12 ára barnapíu?)

Inga ég held nú enn í vonina að þú komir einhverntíman flutt til Íslands, hver veit. En þangað til þá verðum við í sambandi og það er nú alveg tilvalið fyrir ykkur að koma á Skagann og gista áður en þið brunið norður, ekki satt. Í fínu íbúðina, hún verður því miður ekki til í sumar en ég býð samt í kaffi, kannski með Svölu líka. Svala kemur í júlí til Íslands.

Sjáumst á sunnud.

9:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters